RakaskjöldurHafa samband

Drög. Ekki gildandi persónuverndarstefna.

Persónuvernd

Hér er lýst hvaða upplýsingar vefurinn safnar núna og hvað þarf að liggja fyrir áður en þjónusta við heimili hefst.

Það sem vefurinn safnar núna

Tvö form á vefnum vista upplýsingar sem þú slærð inn sjálf(ur). Þær eru geymdar í gagnagrunni hjá Supabase innan Evrópska efnahagssvæðisins og aðeins starfsfólk Rakaskjaldar með vaktaðgang sér þær.

  • Hafa samband: nafn, félag, netfang og erindi. Notað til að svara erindinu.
  • Umsókn verktaka: heiti og kennitala félags, tengiliður, netfang, sími, nafn pípulagningameistara, upplýsingar um ábyrgðartryggingu og þjónustusvæði. Notað til að fara yfir umsóknina og staðfesta réttindi og tryggingar.
  • Engar vefkökur til mælinga eða auglýsinga eru notaðar.
  • Þú getur beðið um að upplýsingum um þig sé eytt með því að senda erindi í gegnum formið „Hafa samband“.

Öppin

Heimili, mál og verktakar í öppunum eru enn tilbúin gögn. Mynd sem valin er í heimilisappinu fer ekki af tækinu.

Hvaða upplýsingar þjónustan myndi vinna

Til að bregðast við leka þarf heimilisfang, tengiliði og símanúmer, lýsingu og myndir af lekanum, upplýsingar um aðgang að heimilinu og tímastimpla aðgerða. Ef heimili er með tengdan búnað bætast við boð frá skynjurum og staða loka.

Það sem þarf að ákveða fyrir þjónustubyrjun

  • Hlutverk hvers aðila fyrir hverja vinnslu, og vinnslusamningur við tryggingafélagið þar sem við á.
  • Tilgangur og varðveislutími fyrir hvern flokk upplýsinga, sérstaklega myndir og aðgangsupplýsingar.
  • Örugg auðkenning, aðgangsstýring og skráning á því hver skoðar mál.
  • Hvaða undirvinnsluaðilar koma að þjónustunni, til dæmis vaktstöð og verktakar.
  • Hvernig brugðist er við öryggisatvikum og hvernig gögn eru afhent eða þeim eytt við samningslok.

Fyrirspurnir

Enginn formlegur farvegur er kominn fyrir fyrirspurnir um persónuvernd. Hann verður birtur hér áður en þjónustan hefst. Til baka á forsíðu